|

Þeir eru ekki margir ofurhugarnir sem hafa reynt að svífa miður tröppurnar framan við Menntaskólan í Reykjavík á hjólabretti.
Tröppurnar eru sennilega ein svæsnasta áskorun sem finnst í Reykjavík, það er ekki bara stærðin sem er fimm þrep, bil 8 þrep, heldur er aðkoman niður í móti en lendingin er lágrétt.
Sá mikli hraði sem þarf til, til að drífa yfir tröppurnar vinnur á móti þegar það þarf að rétta af hallamuninn. Hallinn sem er í aðkomunni gerir ekki bara erfitt fyrir þegar þarf að gera ollie heldur stefnir hann líka ofan í jörðina svo það þarf mikið afl í að standa höggið af sér.

Óli reyndi þetta ollie 20. júlí 2010 eins og sést er hann alveg með þetta en lendingin er þrautinni þyngri.
Aðeins fjórir einstaklingar hafa reynt að fara niður tröppurnar.
1997- Gústi betur þektur sem MC Gusto. Gusto var á þeim tíma í fremstu röð brettamanna á íslandi. (Goðsögn)
Ekki fór betur en svo að Gústi skaðaði á sér ökklana eftir að sparka frá sér brettinu og lenda í neðstu þrepunum.
2001- Egill Atlason, Maðurinn sem jörðin gleypti. Goðsögn íslenzkrar hjólabrettasögu, Egill var fyrstur til að sýna frammá að þetta væri hugsanlega gerlegt.
Egill lenti á brettinu þrisvarsinnum en stóð ekki af sér þrístinginn úr fallinu. Skiljanlega lemstraður eftir bylturnar.
2007- David Bow íslenzkt ættaður Ameríkani. Sem hefur notið mikillar velgengni á bretti í Ameríku, David er stirktur af stórum fyrirtækjum þar ytra.
David reyndi tvisvar en í seinni tilrauninni missti hann skóinn í loftinu og lenti neðst í tröppunum, þegar betur var að gáð stóð bein út úr sári á ristinni.
Opið bein brot. David hlaut ekki varanlegan skaða af brotinu og skeitar enn sem aldrei fyrr.
2010- Ólafur Ingi ungur ofurhugi sem er á hraðrileið að verða að lifandi Goðsögn. Óli lenti þrisvar á brettinu en náði ekki að standa af sér fallið.
Óli er staðráðin í að reyna aftur innan tíðar og verður þar með fyrstur manna til að renna frá tröppunum ef það heppnast hjá honum.
Það verður spennandi að sjá hver verður fyrstur allta til að gera MR tröppurnar en Óli hlýtur að teljast líklegastur enn sem komið er.
|
Comments