head
Hann er
Thursday, 22 July 2010 12:41

Og brunar á bretti eins og engin sé morgundagurinn. Hann kallar ekk allt ömmusína og leiðist ekki að henda sér í stórar kúnstir. Hann hefur mikla stjórn og stíl á brettinu og grípur hvert tækifæri til að renna sér um bæinn. Við tókum hann tali og fengum að forvitnast aðeins meira um kappan.
.
með hardflip á heilanum, Siggi easyflipar hardflip ekkert mál, Reykjavík Skatepark.
.
Hvað heitirðu?
Sigurður Páll Pálsson
.
Hvenær ertu fæddur?
24.mars 1992
.
Hvaðan ertu og hvar ólstu upp?
Ég er ættaður úr austur-Húnavatnssýslu og Akranesi
en ólst upp á ýmsum stöðum í Vesturbænum.
.
Siggi fer létt með að gera kickflip yfir handriði, Breiðholtskirkju í Mjódd Reykjavík
.
Hvað ertu að bralla á daginn?
Skeita, vinna í útvarpi.
.
Hvað gerirðu þér til gamans þegar þú ert ekki að skatea?
Mikið í tónlist og kvikmyndum
.
Hvað fær þig til að langa til að skatea?
Tilfinningin við að ýta sér, lenda stórum trikkum og sjarminn yfir þessu.
.
:Því ekki það Siggi P ollie langt yfir steina gap, Hátegsskóla Reykjavík
.
Hvenær byrjaðirðu að skatea og af hverju?
2004(12 ára) Mamma var að horfa á sjónvarpið og lenti inná Sýn sem var að sýna einhverja
skeitkeppni.
.
Hvað er uppáhalds skate staðurinn þinn?
Ég myndi segja Ingólfstorg bara uppá alla góðu tímana sem maður hefur átt þar.
.
Hvernig er brettið þitt?
Mismunandi plötur(oftast kanzki/mania) 8 að stærð, 54 spitfire dekk, Independent 8 öxlar
og helst Vans skór 43.
.
Sigga leiðist ekki að fljúga, Stalefish grap, Reykjavík Skatepark.
.
Hvað er lífs mottoið þitt?
Hætta væla fáðu þér harðfisk og reddaðessu
.
Hvernig líkar þér að búa á íslandi?
Mér líkar það bara vel fyrir utan veðrið stundum og skeitbúðirnar fara soldið í
taugarnar á mér og þegar samtök ákveða að búa til skeitpörk án þess að láta Brettafélag
Reykjavíkur vita og gera þaraðleiðandi eitthvað sem gæti verið mun mun betra, mér er illa
við flestar tónlistarútvarpstöðvar á landinu vegna lítils metnað á tónlist sjálfri og
þaraðleiðandi eru nokkrar útvarðstöðvar búin að ala upp heila kynslóð af tónvitskertru fólki.
Annars líkar mér bara frekar vel að búa hér og viðurkenni að ég er frekar stoltur af
tungumálinu.
.

Sem fyrr þá leiðist honum ekki að gera stóra hluti!  Siggi P bratt boardslide, Snorrabraut Reykjavík
.
Hvar sérðu þig eftir 10 ár?
Örugglega búa einhverstaðar úti, tónlistarmaður, kvikmyndaleikstjóri eða bara pró ég
veit það ekki en ég ætla aldrei að hætta skeita.
.
Annað að lokum?
To the break of dawn baby.

Það verður gaman að sjá meira frá Sigga P í frammtíðinni, við þökkum honum fyrir viðtalið og óskum honum velfarnaðar.

Haltu áfram að hammra stóru trikkin Siggi! : )


Deila fréttini á...
Facebook! Google! Live! MySpace!

Comments

Name *
Email (For verification & Replies)
Code   
ChronoComments by Joomla Professional Solutions
Submit Comment
 
Banner
Banner
Banner
Banner