|

og er sá sem hefur rennt sér manna mest á íslandi og ekki vantar neitt uppá stílin. Hann gerir hluti sem engin
annar getur og gerir það vel. Hann er klárlega með betri bretta mönnum sem Ísland hefur alið, og mun vera
um ókomnatíð. Við fengum að vita aðeins meira um meistaran.
 Allir út að leika! Sverrir Switch 180, Garðabær.
Hvað heitirðu?
Sverrir Haraldsson
Hvenær ertu fæddur?
4.nóvember 1983
Hvaðan ertu og hvar ólstu upp?
Hafnarfirði
Sverrir er duglegur að smíða í parkinu, nollie halfcap crooked, Reykjavík Skatepark
Hvað ertu að bralla á daginn?
Er að vinna sem smiður
Hvað gerirðu þér til gamans þegar þú ert ekki að skatea?
Fer stundum út á land að veiða og taka ljósmyndir, snjóbretti og er að
filma og klippa skeitmyndir Hvenær byrjaðirðu að skatea og af hverju?
Fékk mitt fyrsta bretti þegar ég var 6 ára var eitthvað smá skateandi i
eitt sumar byrjaði svo aftur 1994, ætli að ég hafi ekki byrjað útaf bróðir
minn var að skatea, vildi vera svona skate pönkari eins og hann
Sverrir sex ára hæðst ánægður með nýja brettið
Hvað fær þig til að langa til að skatea?
Það jafnast ekkert á við það að vera i góðum vinahóp á góðum degi að
skatea og fá sér einn kaldan eftir sessionið og svo liður mér svo vel
þegar ég er crusandi á brettinu allar áhygjur og allt bullshit i kringum
mann þurkast út
Hvað er uppáhalds skate staðurinn þinn?
Ingólfstorg, skateparkið i héðinshúsinu og sk8staðurinn Barcelona áður enn
öllum stöðunum þar var nauðgað
Hvernig er brettið þitt?
7.75 plata kanzki,independent öxlar og 52 mm dekk

Með parkið sem annað heimili, Sverrir tailslide inní oververtin, Reykjavík skatepark
Hvað er lífs mottoið þitt?
Einn bjór á dag kemur skapinu í lag
Hvernig líkar þér að búa á íslandi?
Ég er mjög sáttur að búa á Íslandi sumarið mætti kanski vera aðeins lengra

Íslenzk sumar nótt, switch frontside noseslide, Sæbraut Reykjavík
Hvar sérðu þig eftir 10 ár?
Skateandi harðar en nokkutíman fyrr kominn í drauma vinnuna mína og vera
búsetur einhverstaðar annarsstaðar en á Íslandi í einhvern smá tíma

Í ljósaskiptunum, Sverrir wallride, Garðabær
Við þökkum Sverri fyrir innslagið, bíðum spenntir eftir að sjá nýju myndina
frá honum, og hlökkum til að sjá til hans renna sér inní frammtíðina.
Takk Sverrir, haltu áfram að rugga bátnum!
|
Comments